Ferðir og brottfarir
Stofnaðu ferðir, margar brottfarir, verð, sætaframboð og lykildagsetningar.
Ferðagátt einfaldar utanumhald ferða, farþega, gistingar, afþreyingar, greiðslna og samskipta - frá fyrstu bókun að heimkomu.
Góðan dag!
Hér er yfirlit yfir reksturinn þinn.Costa del Sol 27 / 30
Alicante 18 / 20
Belek 12 / 24
Lokagreiðslur 9
Farþegagögn vantar 7
Herbergjaskipting 2
Ferðagátt er byggð utan um raunverulegt vinnuflæði ferðaskrifstofunnar - ekki öfugt.
Stofnaðu ferðir, margar brottfarir, verð, sætaframboð og lykildagsetningar.
Einstaklings- og hópbókanir með öllum upplýsingum sem þarf fyrir ferðina.
Herbergjategundir, herbergjaskipting og rooming-listar á einum stað.
Golf, dagsferðir, transfer, kvöldverðir og önnur val með skráningu þátttakenda.
Innáborgun, lokagreiðsla, greiðsluáætlanir og skipting kostnaðar milli ferðafélaga.
Rauntímayfirlit yfir stöðu ferða, farþega, greiðslna og verkefna.
Hópurinn getur ferðast saman án þess að einn aðili þurfi að halda utan um alla greiðsluna. Ferðagátt gerir ráð fyrir mismunandi verði, herbergjum, viðbótum og greiðendum innan sömu bókunar.
Eitt skýrt svæði fyrir dagsetningar, greiðslur, gistingu, afþreyingu, ferðagögn og skilaboð. Færri fyrirspurnir til starfsfólks og betri upplifun fyrir farþegann.
Fyrir golfferðir er gert ráð fyrir tengingu þar sem valdar ferðir geta birst í Golfgátt. Eftir bókun getur golfhluti ferðarinnar tengst dagskrá, völlum, leikmönnum, skorkortum, keppnum og ferðatölfræði.
Skoða Golfgátt →Ferðagátt er í þróun sem ný kynslóð rekstrarkerfis fyrir ferðaskrifstofur. Fáðu kynningu og ræddu hvernig lausnin gæti passað inn í þinn rekstur.